Sveindís Jane Jónsdóttir var ekki í leikmannahópi Wolfsburg er liðið gerði jafntefli, 3:3, á heimavelli gegn Werder Bremen í fyrstu umferð þýsku 1. deildarinnar í fótbolta í gær. Einhverjir stuðningsmenn Wolfsburg óttuðust að Sveindís væri á förum…

Sveindís Jane Jónsdóttir var ekki í leikmannahópi Wolfsburg er liðið gerði jafntefli, 3:3, á heimavelli gegn Werder Bremen í fyrstu umferð þýsku 1. deildarinnar í fótbolta í gær. Einhverjir stuðningsmenn Wolfsburg óttuðust að Sveindís væri á förum frá félaginu, en fjarvera hennar átti sér eðlilegar skýringar. Samkvæmt Magenta Sport glímir Sveindís við vöðvameiðsli, en miðillinn greindi ekki frá á hvaða vöðva hún meiddist. Ekki er því víst hve alvarleg meiðslin eru eða hve lengi Sveindís verður frá keppni.

Knattspyrnumaðurinn Mikael Neville Anderson er í úrvalsliði sjöundu umferðar dönsku úrvalsdeildarinnar. Mikael hefur leikið afar vel með AGF frá Árósum á leiktíðinni og komið með beinum hætti að sex mörkum í fyrstu sjö umferðunum. Hann skoraði og lagði upp í 4:2-sigri á Nordsjælland um helgina. Mikael getur spilað flestar stöður á miðjunni og sókninni, en hann er á

...