Útivistarlína Icewear sem samanstendur af fatnaði sem einangraður er með íslenskri ullarfyllingu hefur jafnt og þétt sótt í sig veðrið síðastliðin tvö ár en þessi nýsköpun kom fyrst á markaðinn í byrjun desember árið 2022
Föt Black Sheep Collection samanstendur af léttum jökkum, buxum, pilsum og vestum með 60 g ullarfyllingu.
Föt Black Sheep Collection samanstendur af léttum jökkum, buxum, pilsum og vestum með 60 g ullarfyllingu.

Baksvið

Þóroddur Bjarnason

tobj@mbl.is

Útivistarlína Icewear sem samanstendur af fatnaði sem einangraður er með íslenskri ullarfyllingu hefur jafnt og þétt sótt í sig veðrið síðastliðin tvö ár en þessi nýsköpun kom fyrst á markaðinn í byrjun desember árið 2022. „Viðtökur hafa verið alveg frábærar. Söluaukning á vörulínunni hefur verið um 60% á ári síðan við komum með ullarlínuna á markað og úrvalið hefur einnig aukist mikið á tímabilinu,“ segir Ágúst Þór Eiríksson eigandi fyrirtækisins í samtali við Morgunblaðið.

Mikilvægur hluti

Hann segir nýju línuna nú vera mikilvægan hluta af framboðinu í útivistardeild fyrirtækisins. „Við skynjum að viðskiptavinir eru gríðarlega ánægðir með þessa einstöku vöru sem á engan sinn líka. Ef fólk prófar einu

...