Gylfi Þór Sigurðsson er spenntur fyrir komandi tímum með landsliðinu í fótbolta, sérstaklega í ljósi þess að ungir landsliðsmenn eru farnir að skipta í stærri félög. „Það er meira en annar hver maður að skipta um félag upp á síðkastið, sem er mjög gott. Þetta eru jákvæð skipti hjá mörgum. Við erum með marga unga, efnilega og skemmtilega leikmenn. Komandi ár eru mjög spennandi,“ sagði Gylfi eftir æfingu landsliðsins í gær. Nánar er rætt við hann á mbl.is.