30 ára Særún er Ísfirðingur en býr í Kópavogi. Hún er að klára BA-gráðu í félagsráðgjöf og hefur starfað sem flugfreyja hjá Play en er í fæðingarorlofi. Áhugamálin eru ferðalög og hreyfing en Særún hefur stundað crossfit, skíði og alls konar útivist. Svo finnst henni gaman að eyða tímanum með fjölskyldu og vinum, og að elda og baka.


Fjölskylda Maki Særúnar er Sigurður Sturla Bjarnason, f. 1993, flugmaður hjá Icelandair. Dóttir þeirra er Bryndís Katla, f. 2023. Foreldrar Særúnar eru Brynja Pála Helgadóttir, f. 1964, ljósmóðir, búsett í Mosfellsbæ, og Bergsteinn Gunnarsson, f. 1964, smiður, búsettur á Ísafirði.