— Colourbox

Bjarnamamma nokkur í Bartlett í New Hampshire tók til sinna ráða þegar hún tók eftir góðgæti inni í bíl sem hafði verið lagt á leið hennar um svæðið ásamt húnum sínum tveimur.

Einn gluggi bílsins, sem hafði verið lokað með límbandi, varð auðveld inngönguleið fyrir björninn. Vegfarandi deildi myndbandi af birnunni þar sem sjá má hvernig hún klifrar inn í bílinn og dvelur þar um stund áður en hún kemur aftur út til húna sinna með poka af snakki, en myndbandið hefur vakið mikla lukku á internetinu.

Sjáðu myndbandið á K100.is.