Guðmundur Steinn Gunnarsson
Guðmundur Steinn Gunnarsson

Kammerhópurinn Caput flytur Stífluhringinn eftir Guðmund Stein Gunnarsson á tónleikum í Flóa í Hörpu í kvöld, 4. september, kl. 20. Stífluhringurinn er tónverk í tveimur þáttum sem kom nýverið út á plötu hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Carrier Records. „Um er að ræða listrænt ágenga en jafnframt draumkennda tilraunatónlist sem er jafnframt ástaróður til heimahaganna (en fyrir þá sem ekki vita er Stífluhringurinn gönguleið milli Árbæjar og Breiðholts),“ segir í tilkynningu. Verkið verður flutt í heild sinni ásamt nýju verki eftir Guðmund Stein, Hringlaga rigningu.