Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur gert flugfélagi að greiða farþega, sem varð fyrir því að ný ferðataska hans eyðilagðist í ferðum með flugfélaginu, andvirði töskunnar að fullu. Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að farþeginn fór með…

Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur gert flugfélagi að greiða farþega, sem varð fyrir því að ný ferðataska hans eyðilagðist í ferðum með flugfélaginu, andvirði töskunnar að fullu.

Fram kemur í úrskurði nefndarinnar að farþeginn fór með flugfélaginu frá Keflavík til ónafngreinds lands og til baka aftur í janúar sl. Þegar út var komið reyndist ferðataskan hafa rispast og var farþeganum tjáð af starfsmanni flugvallarins að taskan hefði dottið af farangursbifreið. Í fluginu heim til Íslands beyglaðist taskan einnig töluvert.

Taskan var keypt í Bandaríkjunum í september 2023 fyrir andvirði 163.300 króna auk virðisaukaskatts og krafðist farþeginn þess að fá hana bætta að fullu. Hann lagði fram yfirlýsingu frá framleiðanda töskunnar þar sem fram kom að ekki væri hægt að gera við

...