Valskonur fóru vel af stað í Meistaradeild kvenna í fótbolta í gærkvöldi þegar þær unnu risasigur á Ljuboten frá Norður-Makedóníu, 10:0, í Hollandi. Þær leika því til úrslita við hollensku meistarana í Twente á laugardaginn um sæti í 2. umferð keppninnar. Sigurinn er sá stærsti hjá Val í Evrópukeppni en tvö íslensk kvennalið, Stjarnan og Breiðablik, hafa áður unnið stærri sigra í Evrópuleikjum, eða 11:0, líka gegn mótherjum frá Norður-Makedóníu. » 83