— Morgunblaðið/Eyþór

Nýir stólar voru afhjúpaðir í þingsal Alþingis í gær. Þingmenn munu því setjast í nýja stóla við upphaf þings í næstu viku, en stólarnir voru endurnýjaðir síðast árið 1987. Á vef Alþingis segir að stólarnir nefnist Spuni og séu eftir hönnuðinn Erlu Sólveigu Óskarsdóttur. Tillöguna að leðuráklæðinu og litnum á því átti Anna Leoniak hjá Marimo. Stólarnir eru sömu gerðar og þeir stólar sem eru í þingflokksherbergjum og fundarherbergjum í Smiðju.

Stóll forseta og stólar starfsfólks eru bólstraðir með sama leðri og stólar þingmanna. Einnig er nýtt leður í borðplötum. Stólarnir voru bólstraðir hjá Á. Guðmundsson. Bólstrarinn á Langholtsvegi endurbólstraði stól forseta og starfsfólks, ásamt plötunum í borðunum. Skjaldarmerkið verður á sínum stað á ráðherrastólum en það er ekki stimplað á leðrið heldur saumað í það á saumastofunni Óla prik.