Reykjanesbær er eitt af mest vaxandi sveitafélögum á landinu enda einstaklega vel staðsett. Þar má meðal annars finna fyrsta fimm stjörnu hótel landsins, Diamond Suites, á efstu hæðinni á Hótel Keflavík en hótelið er fjölskyldurekið fyrirtæki sem hefur tekið á móti gestum í næstum 38 ár
Snjór Gestir heilsulindarinnar geta fengið yfir sig raunverulegan snjó.
Snjór Gestir heilsulindarinnar geta fengið yfir sig raunverulegan snjó.

Rósa Margrét Tryggvadóttir

rosa@mbl.is

Reykjanesbær er eitt af mest vaxandi sveitafélögum á landinu enda einstaklega vel staðsett. Þar má meðal annars finna fyrsta fimm stjörnu hótel landsins, Diamond Suites, á efstu hæðinni á Hótel Keflavík en hótelið er fjölskyldurekið fyrirtæki sem hefur tekið á móti gestum í næstum 38 ár. Þar verður innan skamms hægt að fá einstaka lúxusupplifun fyrir öll skilningarvitin – meðal annars með snjókomu innanhúss.

Steinþór Jónsson eigandi hótelsins vinnur nú að opnun algjörlega einstaks upplifunarsvæðis og lúxusheilsulindar á neðstu hæð hótelsins. Staðurinn, sem mun bera heitið KEF SPA & Fitness, er þó miklu meira en bara spa og segja má að það setji ný viðmið hvað viðkemur vellíðan og líkamsrækt á Íslandi.

Ekkert var til sparað í

...