Sigurður Mar Stefánsson fæddist 27. október 1950 í Reykjavík. Hann lést á Hrafnistu Nesvöllum 17. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Stefán Eysteinn Sigurðsson, f. 27.3. 1926, d. 6.8. 2008, og Kristín Guðmundsdóttir, f. 22.6. 1929, d. 31.8. 2006. Systkini Sigurðar eru Guðmundur Skúli, f. 1952, d. 2021, Gunnar Helgi, f. 1957, Guðrún Margrét, f. 1959, og Andri, f. 1972.

Þann 19. júní 1971 kvæntist Sigurður Soffíu Helgu Magnúsdóttur f. 23.6. 1951. Foreldrar hennar voru Magnús Jónsson, f. 1925, d. 2004, og Halldóra Daníelsdóttir, f. 1929, d. 2010. Börn Sigurðar og Soffíu eru 1) Stefán Eysteinn, f. 3.6. 1972, d. 16.7. 2023, kvæntur Maríu Lovísu Árnadóttur f. 18.4. 1974. Börn þeirra eru a) Tara Guðrún, f. 2003, b) Sigurður Leó, f. 2006. 2) Magnús Helgi Sigurðsson, f. 3.7. 1975. 3) Linda Pálína, f. 18.7. 1976, gift Ævari Smára Jóhannssyni, f. 29.12.

...