Sjaldgæfum appelsínugulum humri, sem kom með sendingu til verslunar í New York, hefur verið sleppt út í náttúruna. Starfsfólk í Southampton Stop & Shop fann appelsínugula humarinn meðal þeirra brúnu humra sem komu með nýlegri sendingu. Dýravelferðarsamtök nokkur fengu veður af humrinum og ákváðu að vinna að því að frelsa hann.

Humarinn, Clementine, fór í endurhæfingu undir eftirliti dýralæknis áður en honum var sleppt aftur út í Long Island Sound. Aðeins einn af hverjum 30 milljónum humra ber þetta litaraft. Nánar á K100.is.