Körfuknattleikskonan Dagný Lísa Davíðsdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 27 ára gömul. Hún staðfesti þetta við DFS.is í gær. Dagný lék með Grindavík síðasta vetur en áður með Hamri, Hamri/Þór og Fjölni, ásamt því að leika með bandarísku …
Hætt Dagný Lísa Davíðsdóttir lék síðast með Grindvíkingum.
Hætt Dagný Lísa Davíðsdóttir lék síðast með Grindvíkingum. — Morgunblaðið/Óttar Geirsson

Körfuknattleikskonan Dagný Lísa Davíðsdóttir hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna, 27 ára gömul. Hún staðfesti þetta við DFS.is í gær. Dagný lék með Grindavík síðasta vetur en áður með Hamri, Hamri/Þór og Fjölni, ásamt því að leika með bandarísku háskólaliði, og hún á að baki sex A-landsleiki fyrir Íslands hönd. Dagný sagði við DFS, Fréttavef Suðurlands, að hún væri byrjuð í nýrri vinnu og hefði séð fram á að geta ekki sinnt körfuboltanum sem skyldi.