Vonarland nefnist sýning með vatnslitamyndum sem Linda Guðlaugsdóttir opnar í Gallerí Göngum í dag, föstudag, kl. 16-18. „Ég geng mjög mikið úti í náttúrunni. Ég hef alltaf verið teiknari, notið þess að eiga stund í næði og teikna það sem fyrir augu ber eða skissa með vatnslitum. Mér finnst ég vera að rannsaka, njóta og fljóta með,“ segir Linda, sem er grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands.