Ólafur Ólafsson fæddist í Vestmannaeyjum 17. október 1939. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 26. ágúst 2024.

Hann gekk í hjónaband með Kittý Stefánsdóttur, f. 19. mars 1945, d. 4. desember 2022, hinn 7. september 1963. Saman eignuðust þau Ólaf, f. 9. október 1965, og Helgu Ósk, f. 13. júní 1971.

Útför Ólafs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 6. september 2024.

Kallið er komið,

komin er nú stundin,

vinaskilnaðar viðkvæm stund.

Vinirnir kveðja

vininn sinn látna,

er sefur hér hinn síðsta blund.

...