Haukar, FH og Stjarnan fögnuðu sigrum í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla á Íslandsmótinu í handknattleik en fjórir fyrstu leikir deildarinnar hafa verið jafnir og tvísýnir. Skarphéðinn Ívar Einarsson skoraði sigurmark fyrir Hauka á síðustu sekúndu gegn Aftureldingu í gærkvöld. FH sigraði Fram og Stjarnan lagði HK að velli. » 26