Ólína Margrét Jónsdóttir (Lína) fæddist í Hafnarfirði 1. ágúst 1945. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar eftir nokkurra ára baráttu við alzheimer á Hrafnistu í Hafnarfirði 30. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Elín Friðjónsdóttir og Jón Þorbjörnsson. Bræður Línu eru Birgir Örn, d. 1970, Jón Ellert, Einar Kristján og Sturla.

Lína giftist Steini Sveinssyni 26. september 1970, þegar Elín dóttir hennar var sjö ára. Saman eignuðust þau tvær dætur, Tinnu og Völu.

Börn Elínar eru Ólína Margrét, f. 1985, eiginmaður hennar Bjarni Birgir Fáfnisson, saman eiga þau tvær dætur, Alexöndru Ester og Elísabetu Ýri. Steinn Alex, f. 1986, unnusta Cezara Kiss, Ragnheiður, f. 1992, eiginmaður Pedro Monsonis Aloy, saman eiga þau tvo syni, Pedro Rúnar og Manuel Óðin, Bryndís, f. 1994, unnusti Harvey Leponis Dean.

...