Kristrún Agnarsdóttir fæddist 24. febrúar 1973 á Ási í Vestur-Skaftafellssýslu. Hún lést á heimili sínu 21. ágúst 2024.

Foreldrar hennar eru Agnar Hólm Kolbeinsson frá Brekkum í Vík í Mýrdal, f. 9. janúar 1949, og Lóa Hallsdóttir frá Raufarhöfn, f. 26. febrúar 1953, d. 17. febrúar 2010. Systkini Kristrúnar eru Kolbeinn, f. 1970, eiginkona Guðríður Jónsdóttir, f. 1972, Róbert, f. 1976, eiginkona Sigrún Ósk Ómarsdóttir, f. 1978, og Ásdís Helga, f. 1989, eiginmaður Damian Eisermann, f. 1990.

Kristrún giftist Oddi Þór Benediktssyni, f. 1973, þann 21. maí 1994. Börn þeirra eru: 1) Benedikt Arnar, f. 4. september 1993, eiginkona Þuríður Ósk Sigurbjörnsdóttir, f. 1997. 2) Katrín Lóa, f. 19. maí 1995, dætur hennar eru Viktoría Ósk Magnúsdóttir, f. 2013, og Emelía Ósk Böðvarsdóttir, f. 2016. 3) Díana Ósk, f. 29. júní 1997, unnusti Elías Örn Viktorsson,

...