Gæsluvarðhald yfir manninum sem er grunaður er um að hafa orðið hjónum í Neskaupstað að bana í lok ágúst hefur verið framlengt til 4. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi, en þar segir að rannsókn málsins sé í fullum gangi og miði vel. Þar segir einnig að mikil vinna sé fram undan í úrvinnslu gagna, sem muni taka tíma.

Maðurinn er grunaður um að hafa orðið hjónunum í Neskaupstað, sem voru á áttræðisaldri, að bana en hann var síðan handtekinn í Reykjavík.