Benedikt Gíslason
Benedikt Gíslason

Arion banki hefur gengið frá samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Arngrimsson Advisors Limited við hluthafa félagsins. Arngrimsson Advisors hefur sinnt eignastýringarráðgjöf með áherslu á erlenda fagfjárfestasjóði og sérhæfðar fjárfestingar frá árinu 2013. Markmiðið með kaupunum er að fjölga valkostum viðskiptavina bankans – fagfjárfesta og einstaklinga – þegar kemur að fjárfestingum í erlendum sjóðum, sérstaklega á sviði sérhæfðra fjárfestinga. Gangi kaupin eftir munu eignir í stýringu hjá Arion aukast um rúma 170 milljarða króna.