Þau Kristín og Bolli urðu vör við grunsamlegar mannaferðir í kringum heimili sín í vikunni en þau ræddu um upplifanir sínar í Ísland vaknar í morgun. Kristín vaknaði upp við að Breki, franskur bolabítur þeirra hjóna, var að gelta að manneskju sem stóð fyrir utan húsið þeirra um klukkan fimm í nótt. „Ég heyrði í bréfalúgunni og hann [Breki] var brjálaður þannig að ég vissi að það væri einhver við hurðina hjá okkur og Stefán fer fram og tékkar á málunum,“ sagði Kristín og lýsti fullorðnum manni sem stóð fyrir utan á rafmagnshlaupahjóli. Nánar á K100.is.