Gjaldskylda tekur brátt gildi á bílastæðum við Seljaveg og Vesturgötu milli Ánanausta og Stýrimannastígs í Reykjavík. Göturnar verða hluti af gjaldsvæði 2. Ákvörðunin um útvíkkun gjaldsvæða var tekin fyrr í sumar og hafa starfsmenn á vegum…
— Morgunblaðið/Eggert

Gjaldskylda tekur brátt gildi á bílastæðum við Seljaveg og Vesturgötu milli Ánanausta og Stýrimannastígs í Reykjavík. Göturnar verða hluti af gjaldsvæði 2. Ákvörðunin um útvíkkun gjaldsvæða var tekin fyrr í sumar og hafa starfsmenn á vegum borgarinnar unnið hörðum höndum undanfarnar vikur við að koma upp viðeigandi merkingum og stöðumælum. Gjaldtaka átti að hefjast 1. september, en það var sunnudagur og mælarnir komu ekki upp fyrr en á mánudag. Ekki verður farið í að rukka strax en íbúar munu fá viðvörun í gegnum Ísland.is, sama kerfi og gjöld eru send út í. Er þetta til að gefa íbúum meiri aðlögunartíma. Auk Seljavegs og Vesturgötu stækkar gjaldsvæðið einnig á Aragötu, Oddagötu, Sæmundargötu og á bílastæði við Hallgrímskirkju.