Öll aðhyllumst við sannleikann – a.m.k. þegar hann hentar okkur. Orðasambandið að leiða mann í allan sannleika um málið merkir að gera manni fulla grein fyrir því hvernig málið er vaxið

Öll aðhyllumst við sannleikann – a.m.k. þegar hann hentar okkur. Orðasambandið að leiða mann í allan sannleika um málið merkir að gera manni fulla grein fyrir því hvernig málið er vaxið. Að færa manni heim sanninn um e-ð þýðir að sýna manni fram á e-ð. Og höfuðatriði að halda sögnunum færa og leiða hvorri í sínu rétta sambandi.