Snorri Hildimar Jónsson fæddist 19. desember 1956 á Skólastíg 15 í Bolungarvík. Hann lést 22. ágúst 2024 á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Snorri var sonur hjónanna Rannveigar Snorradóttur frá Bolungarvík, f. 9.10. 1937, og Jóns Valgeirs Guðmundssonar frá Folafæti, f. 3.4. 1929, d. 19.12. 2012. Systur Snorra eru Elísabet, f. 5.7. 1955, Guðrún Jónína, f. 4.5. 1958, Lára Kristín, f. 21.3. 1964, Selma Guðmunda, f. 29.4. 1968, og Erna, f. 22.5. 1976.

Snorri átti úr fyrra sambandi dótturina Rannveigu, f. 3.9. 1984. Barn hennar er Haukur Hildimar Davíðsson, f. 24.4. 2003. Með eiginkonu sinni, Þórhildi Sigurðardóttur, f. 31.3. 1963, átti Snorri þrjú börn, þau eru: Sara Rut, f. 5.2. 1996, maki hennar er Arnar Ingi Magnússon, f. 4.8. 1993, börn þeirra eru Hildimar Ingi og Aþena Hjördís; Sigurður Aron, f. 5.2. 1996, maki hans er Aldís Huld Höskuldsdóttir,

...