Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, rifjaði upp sögulegan sigur Íslands í Tyrklandi árið 2017 á blaðamannafundi í Izmir í gær en þjóðirnar mætast þar í kvöld klukkan 18.45 í Þjóðadeildinni. „Leikurinn sem við unnum 3:0 er eftirminnilegur. Þá voru svakaleg læti í Tyrkjunum en við náðum að slökkva vel í þeim og vonandi náum við að gera það aftur,“ sagði Jóhann Berg.