Björn Jónasson útgefandi lést 6. september, 70 ára að aldri.
Björn fæddist í Reykjavík 20. júní 1954. Foreldrar hans voru Jónas Bergmann Jónsson fræðslustjóri og Guðrún Ö. Stephensen húsmóðir.
Björn hóf útgáfuferil sinn sem ritstjóri Stúdentablaðs Háskóla Íslands og kom að starfsemi Gallerís Svart á hvítu í Suðurgötu 7 í Reykjavík. Það var mikil lyftistöng fyrir þá gerjun sem þá var í íslenskri myndlist, einkum fyrir unga myndlistarmenn og þar á meðal úr nýlistadeildinni, sem þá lét að sér kveða en fékk síður brautargengi í hefðbundnum myndlistarsölum.
Hann lét víðar til sín taka á tímum umbrota í listum og stjórnmálum, þar sem markmiðið var að gera menninguna bæði frá fyrri tíð og samtíma aðgengilega almenningi.
Björn stofnaði útgáfuna Svart á hvítu sem gaf út Íslendingasögurnar með nútímastafsetningu, Sturlungasögu og heildarverk Jónasar Hallgrímssonar. Þá hóf útgáfan vinnu við útgáfu Sögu-Atlas.
Svart á hvítu var jafnframt útgefandi
...