30 ára Guðný Ljósbrá ólst upp í Hafnarfirði með móður sinni og systkinum. Núna býr hún í Reykjavík á Eggertsgötunni. Guðný tók sálfræði- og fjölmiðlafræði sem grunn í Háskóla Íslands og hélt svo áfram þar og útskrifaðist úr meistaranámi sínu árið 2022 í markaðs- og alþjóðaviðskiptum. Í háskólanum var Guðný virk í meðal annars viðburðahaldi tengdu skólanum og sem varaforseti Stúdentaráðs.

Núna starfar Guðný sem framkvæmdastjóri Wake Up Reykjavík, ferðaþjónustufyrirtækis sem sérhæfir sig í matarleiðsögn um Reykjavík fyrir ferðamenn. Einnig starfar Guðný hjá umboðs- og viðburðafyrirtækinu Paxal sem kemur að uppsetningu viðburða eins og IceGuys og er með umboð fyrir marga helstu tónlistarmenn landsins.

Mataráhugi Guðnýjar vaknaði snemma og lýsir hún því sem áhugamálinu sínu í dag. „Aðalhugamálið mitt er matur

...