Aron Snær Árnason fæddist í Álaborg 7. október 1999. Hann lést á heimili sínu í Hafnarfirði 22. ágúst 2024.

Foreldrar hans eru Lovísa Jónsdóttir, f. 24. júlí 1975, og Árni Róbert Sigurðsson, f. 6. febrúar 1969. Stjúpfaðir Arons er Ólafur Björn Guðmundsson, f. 6. maí 1977.

Systkini Arons eru: Jón Róbert Árnason, f. 9. sept. 1996; Eldur Árnason, andvana fæddur 7.12. 2012; Þórey Vigdís Ólafsdóttir, f. 13. júní 2013.

Sambýliskona Aron Snæs er Adrianna Maria Rozko, f. 15. nóv. 2001.

Aron Snær ólst upp í Álaborg til fjögurra ára aldurs er foreldrar hans fluttu til Íslands og settust að í Mosfellbæ.

Aron Snær hóf skólagöngu sína í Lágafellsskóla en 11 ára flutti hann í Grafarholt og hóf nám

...