Skorar Erling Haaland er aðeins 24 ára en samt bara feti frá meti.
Skorar Erling Haaland er aðeins 24 ára en samt bara feti frá meti. — AFP/Kamil Krzaczynski

Erling Haaland reyndist hetja Noregs þegar liðið lagði Austurríki, 2:1, í 3. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar í knattspyrnu í Ósló í gærkvöld. Sigurmark hans kom á 80. mínútu. Felix Myhre kom Noregi yfir snemma leiks en Marcel Sabitzer jafnaði fyrir Austurríki fyrir hlé. Haaland hefur nú skorað 32 mörk í 34 A-landsleikjum og er aðeins einu marki frá því að jafna markamet Jörgens Juves sem hefur staðið í 90 ár, frá árinu 1934.