Ólafía Kolbrún Tryggvadóttir (Lóa) fæddist í Reykjavík 13. ágúst 1935. Hún lést á LSH í Fossvogi 7. ágúst 2024.

Foreldrar hennar voru Tryggvi Pétursson útibússtjóri og Guðrún Jónasdóttir húsmóðir.

Systur Ólafíu voru Sigríður Elísabet og Ásta, sem báðar eru látnar, eftirlifandi systir hennar er Guðrún Steinunn.

Eiginmaður Ólafíu var Kristinn G. Álfgeirsson múrari, f. 9.1. 1937, d. 15.11. 2019.

Eignuðust þau tvö börn, þau eru: 1) Brynjar Snær, f. 25.11. 1966, d. 26.6. 1998. Brynjar átti fjóra drengi; Árna Guðjón, Tryggva Pétur, Stefán Snæ og Kristjan Catalin. 2) Guðrún, f. 1.2. 1974. Á hún tvo drengi; Nóa Snæ og Nökkva Blæ.

Ólafía starfaði lengst af hjá Búnaðarbanka

...