Gert er ráð fyrir auknum tekjum ríkissjóðs af veiðigjaldi á næsta ári. Fram kemur í fjárlagafrumvarpinu að matvælaráðuneytið leiðir nú endurskoðun á lögunum um veiðigjald en áætlað er að veiðigjaldið skili ríkinu um 2 milljörðum kr. á árinu 2025. Verðmætagjald sjókvíaeldis hækkar úr 4,3% í 5% af markaðsverði afurða á næsta ári. Gert hafði verið ráð fyrir að hækka gjaldið í 5% á þessu ári en ákveðið var að áfangaskipta hækkuninni og kemur sá síðari til framkvæmda 2025. Eiga tekjur af því að aukast um 300 milljónir.