Kanadamaðurinn Jamal Murray hefur skrifað undir nýjan samning við Denver Nuggets sem tryggir honum 244 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 34 milljarða íslenskra króna, á næstu fimm árum

Kanadamaðurinn Jamal Murray hefur skrifað undir nýjan samning við Denver Nuggets sem tryggir honum 244 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 34 milljarða íslenskra króna, á næstu fimm árum. Murray hefur myndað eitt besta tvíeyki NBA-deildarinnar ásamt Serbanum Nikola Jokic undanfarin ár. Þeir voru í stóru hlutverki þegar Denver varð NBA-meistari í fyrsta sinn vorið 2023.

Hermann Þór Ragnarsson hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild ÍBV sem gildir til loka ársins 2027. Hermann Þór hefur leikið vel með ÍBV á tímabilinu þar sem liðið trónir á toppi 1. deildar og tryggir sér sæti í Bestu deildinni að nýju með sigri á Leikni úr Reykjavík í lokaumferðinni um næstu helgi. Er sóknarmaðurinn búinn að skora fjögur mörk í 13 leikjum í deildinni í ár.

Anton Gylfi

...