Skoraði Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði eitt marka Íslands.
Skoraði Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði eitt marka Íslands. — Ljósmynd/Malmö

Íslenska drengjalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 19 ára og yngri vann öruggan sigur á jafnöldrum sínum frá Kasakstan, 5:2, í lokaumferð alþjóðlegs móts í Slóveníu í gær. Ísland hafnaði í öðru sæti af átta liðum á mótinu en Frakkland stóð uppi sem sigurvegari. Liðin átta spiluðu þrjá leiki hvert. Daði Berg Jónsson skoraði tvívegis fyrir Ísland auk þess sem Daníel Tristan Guðjohnsen, Sölvi Stefánsson og Stígur Diljan Þórðarson skoruðu.