Mark Xavi Simons, Denzel Dumfries og Quinten Timber fagna.
Mark Xavi Simons, Denzel Dumfries og Quinten Timber fagna. — AFP/Nicolas Tucat

Holland og Þýskaland gerðu jafntefli, 2:2, í hörkuleik í 3. riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu karla í gærkvöld.

Bæði lið eru með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Þýskaland trónir á toppnum með betri markatölu.

Tijjani Reijnders kom Hollendingum í forystu eftir aðeins tveggja mínútna leik þegar hann slapp einn í gegn eftir stungusendingu Ryans Gravenberch og lagði boltann milli fóta Marc-André ter Stegen í marki Þýskalands.

Á 38. mínútu jafnaði Deniz Undav metin með góðu vinstri fótar skoti úr vítateignum sem hafnaði uppi í þaknetinu.

Seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks kom fyrirliðinn Joshua Kimmich Þýskalandi yfir með skoti af stuttu færi eftir að skot Undavs fór af Matthijs de Ligt og beint í hlaupaleið Kimmich.

Snemma í síðari hálfleik, á 50. mínútu, jafnaði Denzel Dumfries metin fyrir Holland með skoti af stuttu færi eftir góðan undirbúning Brians Brobbeys.

Í hinum leik riðilsins gerðu Ungverjaland og

...