Drjúgur James Rodríguez skoraði og lagði upp í gærkvöldi.
Drjúgur James Rodríguez skoraði og lagði upp í gærkvöldi. — AFP/Joaquin Sarmiento

Kólumbía tyllti sér í annað sæti undankeppni Suður-Ameríku fyrir HM 2026 í knattspyrnu karla með heimasigri á heimsmeisturum Argentínu, 2:1, í gærkvöldi. Kólumbía er nú með 16 stig, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Argentínu þegar bæði lið hafa spilað átta leiki. Yerson Mosquera kom Kólumbíu yfir eftir undirbúning James Rodríguez áður en Nicolás González jafnaði metin fyrir Argentínu. Rodríguez skoraði svo sigurmark Kólumbíu.