Hópur fólks kom saman til kyrrðarstundar í Kópavogskirkju í gærkvöldi, þar sem þeirra var minnst sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Dagurinn 10. september er alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga og er hluti af gulum september, sem er…
— Morgunblaðið/Eyþór

Hópur fólks kom saman til kyrrðarstundar í Kópavogskirkju í gærkvöldi, þar sem þeirra var minnst sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Dagurinn 10. september er alþjóðlegur forvarnadagur sjálfsvíga og er hluti af gulum september, sem er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Ísland er fyrsta landið í heiminum sem leggur undir heilan mánuð til þess að vekja athygli á geðrækt og sjálfsvígsforvörnum í samfélaginu.