Þórunn Valdimarsdóttir opnar næstu sýningu Glerhússins, Tóta teiknar, í dag milli kl. 17 og 20. „Þórunn nam ung að árum myndlist í Mexíkó og hefur allan feril sinn sem rithöfundur, skáld og sagnfræðingur teiknað
Skáld Þórunn Valdimarsdóttir
Skáld Þórunn Valdimarsdóttir

Þórunn Valdimarsdóttir opnar næstu sýningu Glerhússins, Tóta teiknar, í dag milli kl. 17 og 20. „Þórunn nam ung að árum myndlist í Mexíkó og hefur allan feril sinn sem rithöfundur, skáld og sagnfræðingur teiknað. Ljóðabækurnar hefur hún myndskreytt. Sýningin er sú fyrsta í sýningaröð Glerhússins um rithöfunda sem stunda myndlist. Nýlega komu út eftir Þórunni ljóðabókin Fagurboðar og bókin Spegill íslenskrar fyndni sem er sagnfræðilegs eðlis. Á opnuninni les Þórunn upp úr bókunum,“ segir í tilkynningu. Sýningin stendur til 29. september og er opin á laugardögum og sunnudögum
kl. 13-17 og á löngum fimmtudegi þann 26. september kl. 17-20.