50 ára Björn Þór er Akureyringur og ólst upp bæði í Þorpinu og á Brekkunni. „Ég er alinn upp sem grjótharður Þórsari en sökum fjölskyldutengsla í KA er ég orðinn dálítill KA-maður í mér.“ Björn Þór og fjölskylda búa núna í Lundarhverfi.

Björn Þór lauk meistaranámi í húsasmíði við Tækniskólann í Reykjavík árið 2008. „Ég villtist suður í ansi mörg ár, alveg frá 1992 til 2011. Svo var ég í Noregi, á Stavanger-svæðinu 2011-2014 og flutti svo aftur til Akureyrar endanlega 2014.“ Hann stofnaði síðan árið 2016 byggingafyrirtækið BF byggingar ásamt Frey Aðalgeirssyni og eiga þeir hvor sinn helminginn í því. „Við höfum verið nánast eingöngu í því að byggja og selja fasteignir, fjölbýlishús og raðhús á Akureyri.“

Björn Þór er frímúrari og er í Golfklúbbi Akureyrar, en hann er mikill áhugamaður um

...