Einar Þorsteinsson borgarstjóri hefur flutt tillögu í borgarráði um aukið rekstrarframlag til Strætó vegna hækkunar kostnaðar fyrir aðkeyptan akstur. Kostnaður umfram áður samþykkta fjárhagsáætlun Strætó á árinu 2024 er áætlaður um 188 milljónir…
— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Einar Þorsteinsson borgarstjóri hefur flutt tillögu í borgarráði um aukið rekstrarframlag til Strætó vegna hækkunar kostnaðar fyrir aðkeyptan akstur.

Kostnaður umfram áður samþykkta fjárhagsáætlun Strætó á árinu 2024 er áætlaður um 188 milljónir króna og er hlutur Reykjavíkurborgar 62% eða 116 milljónir.

Tillagan er flutt með fyrirvara um að aðrir eigendur félagsins leggi fram viðbótarfjármagn í samræmi við eigendahlutfall sitt til jafns við Reykjavíkurborg. Tillögunni var vísað til afgreiðslu borgarstjórnar.

Fyrr á þessu ári samþykkti stjórn Strætó að ganga til samninga við Almenningsvagna-Kynnisferðir ehf. og Hagvagna ehf. að loknu útboði á hluta leiða. Þessi tvö fyrirtæki tóku þátt í því.

...