Sjón­varps­stöðin HBO leit­ar nú að nýj­um aðalleik­ur­um fyr­ir kom­andi Harry Potter-seríu og opnaði fyr­ir um­sókn­ir fyrr í vik­unni. Áhuga­sam­ir þurfa að upp­fylla ákveðin skil­yrði til að geta fengið hlut­verk Harrys, Rons eða Hermi­o­ne, en…

Sjón­varps­stöðin HBO leit­ar nú að nýj­um aðalleik­ur­um fyr­ir kom­andi Harry Potter-seríu og opnaði fyr­ir um­sókn­ir fyrr í vik­unni. Áhuga­sam­ir þurfa að upp­fylla ákveðin skil­yrði til að geta fengið hlut­verk Harrys, Rons eða Hermi­o­ne, en börn­in þurfa að vera á aldr­in­um níu til ell­efu ára í apríl 2025 og búa í Bretlandi eða á Írlandi. Þeir sem vilja sækja um verða að senda tvö myndbönd af sér flytja annars vegar ljóð eða sögu og hins vegar kynningu. Enginn útgáfudagur hefur enn verið tilkynntur fyrir seríuna, en líklegt þykir að hún verði tekin upp í Bretlandi 2025-2026.