Mjúkur, tilfinninganæmur, fúinn er meðal þess sem meyr getur þýtt. „Ég varð dálítið meyr um áramótin, hann Kolbeinn, hamsturinn minn, hefði orðið þriggja á nýársdag.“ „Meyrt kjöt er mjúkt undir tönn.“ Algengast um fólk eða…

Mjúkur, tilfinninganæmur, fúinn er meðal þess sem meyr getur þýtt. „Ég varð dálítið meyr um áramótin, hann Kolbeinn, hamsturinn minn, hefði orðið þriggja á nýársdag.“ „Meyrt kjöt er mjúkt undir tönn.“ Algengast um fólk eða kjöt! Kemur fyrir um timbur og í Sjálfstæðu fólki er getið um meyrar gorkúlur. Hér nefnt út af ey-inu.