Margrét Ólafía Óskarsdóttir fæddist 27. nóvember 1938. Hún lést 24. ágúst 2024.

Útför Ólafíu fór fram 4. september 2024.

Elsku amma.

Þegar við fluttum á Selfoss frá Svíþjóð var ég níu ára gömul og allt var nýtt. Þegar ég og systkini mín byrjuðum í nýjum skóla í „nýju“ landi þá var mjög gott að eiga þig og afa að. Þið voruð kunnugleg og örugg andlit á nýjum slóðum. Ég man eftir því fyrsta árið mitt á Íslandi að hafa fengið að vera með þér þegar þú vannst í efnalauginni. Ég fékk meira að segja að hjálpa til! Ég fékk að setja hlífar á herðatrén og plast yfir fötin sem voru orðin hrein og fín. Mikið fannst mér þú flott í þeirri vinnu og gaman að fylgjast með þér vinna, sérstaklega þegar þú varst að pressa fötin. Ég dáðist svo að þér og kraftinum í þér. Svo þegar þú fórst að vinna með

...