Jaðrar þess hrauns sem rann í síðustu jarðeldum, norðaustur af Fagradalsfjalli, eru nú 2,7 kílómetra frá Reykjanesbraut þar sem þeir liggja nyrst. Fari svo að það gjósi aftur í grennd við þá gíga sem lengst voru virkir í nýliðnu gosi gæti glóandi…
Vogar Enn rýkur úr hrauninu rétt sunnan við Reykjanesbraut og byggðina í Vogum. Þorvaldur telur að nýtt hraun gæti náð að brautinni á innan við degi, gjósi aftur á sömu slóðum og síðast.
Vogar Enn rýkur úr hrauninu rétt sunnan við Reykjanesbraut og byggðina í Vogum. Þorvaldur telur að nýtt hraun gæti náð að brautinni á innan við degi, gjósi aftur á sömu slóðum og síðast. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Jaðrar þess hrauns sem rann í síðustu jarðeldum, norðaustur af Fagradalsfjalli, eru nú 2,7 kílómetra frá Reykjanesbraut þar sem þeir liggja nyrst. Fari svo að það gjósi aftur í grennd við þá gíga sem lengst voru virkir í nýliðnu gosi gæti glóandi hraunið náð Reykjanesbraut á innan við degi eða jafnvel enn skemmri tíma.

Þetta segir Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands. Ef Reykjanesbrautin lokist þurfi viðbragðsaðilar að hugsa fyrir því hvernig koma eigi umferð til Keflavíkurflugvallar. Reykjavíkurflugvöllur beri engan veginn þá flugumferð.

„Við getum ekki fullyrt hvort gosstöðvarnar eru að færast norðar, en það eru vísbendingar um að virknin sé að færast norður fyrir vatnaskil. Ef gossprungan opnast á

...