HK gerði sér lítið fyrir og sigraði Íslandsmeistara FH, 36:32, á heimavelli í úrvalsdeild karla í handbolta í gærkvöldi. FH var með tveggja marka forskot í hálfleik en HK vann seinni hálfleikinn með sex mörkum og leikinn í leiðinni. Haukar og Grótta eru með fullt hús, Haukar unnu KA á útivelli, 34:26, og Grótta sigraði nýliða ÍR á útivelli, 33:29. » 26