Selfyssingar Janus Daði Smárason hjápar sveitunga sínum og liðsfélaga með landsliðinu Ómari Inga Magnússyni á fætur í leiknum í gærkvöldi.
Selfyssingar Janus Daði Smárason hjápar sveitunga sínum og liðsfélaga með landsliðinu Ómari Inga Magnússyni á fætur í leiknum í gærkvöldi. — Ljósmynd/Aleksandar Djorovic

Janus Daði Smárason vann sigur á sínu gamla liði Magdeburg er hann og liðsfélagar hans hjá Pick Szeged frá Ungverjalandi unnu þýska liðið á heimavelli, 31:29, í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöldi.

Selfyssingurinn skoraði tvö mörk. Ómar Ingi Magnússon gerði fimm fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Kristjánsson tvö. Janus lék með þeim Ómari og Gísla hjá Magdeburg á síðustu leiktíð.

Dinamo Búkarest frá Rúmeníu vann öruggan heimasigur á danska liðinu Fredericia, 37:28. Haukur Þrastarson, sem er á sínu fyrsta tímabili með Dinamo, skoraði sex mörk fyrir liðið og var markahæstur.

Einar Þorsteinn Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Fredericia en Arnór Viðarsson var ekki með. Guðmundur Guðmundsson þjálfar liðið.

...