Meistari Perla Sól varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn 15 ára.
Meistari Perla Sól varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn 15 ára. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR var á meðal kylfinga sem kepptu fyrir úrvalslið Evrópu gegn úrvalsliði Bandaríkjanna í Solheim-bikar stúlkna sem lauk í gær. Keppnin er fyrir kylfinga á aldrinum 12-18 ára. Bandaríska liðið reyndist mun sterkara og vann með 18,5 vinningum gegn 5,5. Perla, sem heldur upp á átján ára afmælið sitt síðar í mánuðinum, er fyrsti íslenski kylfingurinn sem fær þann heiður að keppa á mótinu.