Mormónar Á efnisveitunni Hulu er hulunni svipt af lífi mormónakvenna sem eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Þátturinn, The Secret Lives of Mormon Wives, á væntanlega eftir að hneyksla lýðinn
Raunveruleikaþáttur um mormónakonur mun koma á óvart.
Raunveruleikaþáttur um mormónakonur mun koma á óvart. — Hulu

Mormónar Á efnisveitunni Hulu er hulunni svipt af lífi mormónakvenna sem eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Þátturinn, The Secret Lives of Mormon Wives, á væntanlega eftir að hneyksla lýðinn. Lygar, leyndarmál og skandalar leynast á meðal þessara mormónafjölskyldna sem áður hafa opinberað líf sitt á TikTok undir merkinu #MomTok.

Í þáttunum er fylgst með átta mormónaáhrifavöldum og hvernig þær tækla lífið eftir að skandall er gerður opinber. Skandallinn er sá að pörin voru að „svinga“ eða með öðrum orðum að skiptast á mökum.