Landsliðskonan unga Emilía Kiær Ásgeirsdóttir heldur áfram að skora fyrir meistarana Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hin 19 ára gamla Emilía sem lék fyrsta A-landsleikinn í sumar, varð markahæst í deildinni síðasta vetur og nú…
Skorar Emilía Kiær Ásgeirsdóttir fagnar marki með Nordsjælland.
Skorar Emilía Kiær Ásgeirsdóttir fagnar marki með Nordsjælland. — Ljósmynd/Nordsjælland

Landsliðskonan unga Emilía Kiær Ásgeirsdóttir heldur áfram að skora fyrir meistarana Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hin 19 ára gamla Emilía sem lék fyrsta A-landsleikinn í sumar, varð markahæst í deildinni síðasta vetur og nú hefur hún skoraði sex mörk í fyrstu fimm umferðunum eftir að hafa gert eitt mark í útisigri liðsins, 4:1, gegn B93 í gærkvöld. Nordsjælland er á toppnum og hefur unnið alla fimm leiki sína.