Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944.

Við 7. grein laganna bætist ný málsgrein, sem verður 1. mgr., svohljóðandi: Tjúgufáninn skal dreginn á stöng alla daga ársins á Alþingishúsinu og Stjórnarráðshúsinu kl. 8 að morgni og vera við hún til kl. 21 að kvöldi. Þessa fána skal lýsa upp í skammdeginu. Lög þessi öðlast gildi hinn 1. desember 2024.

Flutningsmenn eru Birgir Þórarinsson, Ásmundur Friðriksson, Diljá Mist Einarsdóttir, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Fram kemur í greinargerð að frumvarp þetta var áður flutt á 148. löggjafarþingi (459. mál), 149. löggjafarþingi (31. mál), 150. löggjafarþingi (325. mál) og 154. löggjafarþingi (89. mál). Í fyrri

...