— Morgunblaðið/Eggert

Útför Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést af sárum sínum eftir stunguárás í Reykjavík á Menningarnótt, var gerð frá Hallgrímskirkju í gær.

Séra Örn Bárður Jónsson og séra Guðni Már Harðarson þjónuðu, organisti var Gunnar Gunnarsson, karlakórinn Fóstbræður söng og Sigríður Thorlacius söng einsöng.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands var meðal gesta við athöfnina.

Fjölmargir kveiktu á friðarkertum við heimili sín í gærkvöldi til minningar um Bryndísi Klöru. Stofnaður hefur verið sjóður til minningar um hana sem styðja á við verkefni og aðgerðir sem stuðla beint að aukinni velferð og öryggi ungs fólks í samfélaginu.